Hornamaðurinn Andri Snær Stefánsson er genginn til liðs við Akureyri í N1-deild karla frá danska félaginu Odder þar sem hann hefur leikið undanfarið eitt og hálft ár.
Andri, sem er 26 ára gamall, ætti að vera norðanmönnum kunnugur enda á hann að baki 99 leiki fyrir félagið þar sem hann lék fyrstu fjögur árin frá stofnun þess árið 2006. Hann var kosinn besti leikmaður liðsins árin 2007 og 2008.
Hann mun eflaust reynast Akureyringum talsverður liðsstyrkur en mikil meiðslavandræði hafa verið hjá félaginu fyrri hluta tímabils þar sem lykilmenn á borð við Heimi Örn Árnason og Hörð Fannar Sigþórsson hafa verið frá.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook