Föstudagur, 27. janúar 2012 | Snorri Sturluson | snorri@sport.is

EHF | Tor Lian stígur af stalli

Mynd: Nordic Photos

Norðmaðurinn Tor Lian, sem verið hefur forseti Handknattleikssambands Evrópu, EHF, síðan 2004 tilkynnti á stjórnarfundi í Belgrad í dag að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri á aðalfundi í Mónakó í júní.  Varaforseti sambandsins, Jean Brihault, býður sig hins vegar fram til forseta.

Lian settist eins og áður segir í forsetastólinn árið 2004, en hann hafði þá gegnt embætti varaforseta sambandsins og var einn þeirra sem komu að stofnun sambandsins árið 1991.  Eftir að Lian tilkynnti á stjórnarfundinum í dag að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri voru honum færðar þakkir framkvæmdastjórnar fyrir vel unnin störf, ekki síst fyrir að auka veg handboltaíþróttarinnar í Evrópu í forsetatíð sinni.

"‘Ég hef notið tímans sem ég hef starfað fyrir EFH, ekki síst tímans sem ég hef verið forseti," sagði Lian m.a. á stjórnarfundinum í dag.  "Við höfum afrekað ótrúlega hluti á þessum tíma.  Ég þakka framkvæmdastjórninni hlý orð í minn garð og lýsi yfir stuðningi mínum við framboð Jean Brihault.  Hann hefur verið einn af lykilmönnum framkvæmdastjórnar EHF um árabil og er rétti maðurinn til að leiða sambandið á komandi árum."