Föstudagur, 27. janúar 2012 | Þröstur Ernir Viðarsson | throstur@sport.is

N1-deild kvenna | Dagný Skúladóttir: Mikil viðurkenning fyrir mig

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Þetta kom skemmtilega á óvart,“ segir Dagný Skúladóttir handknattleikskona í liði Vals í samtali við Sport.is, en hún var í dag valin besti leikmaður N1-deildar kvenna í umferðum 1-9. Dagný hefur verið mikilvægur hlekkur í sterku liði Vals það sem af er tímabils. Hún hefur skorað grimmt úr horni sem og hraðaupphlaupum og einnig verið sterk í vörninni.

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig og sérstaklega í ljósi þess að ég er nýlega komin til baka eftir hlé,“ sagði Dagný. Hún tók fram skóna að nýju fyrir um ári síðan eftir að hafa tekið sér frí vegna barneigna.

Ég er með mjög sterkum leikmönnum í liði og auk þess hafa leikmenn úr öðrum liðum verið að spila vel í vetur. Þannig að ég er hæstánægð með þetta.“

Um deildina sjálfa segir hún ánægjulegt hvað önnur lið hafa bætt sig mikið og það sé gott fyrir íslenskan kvennahandbolta.

Ég er alveg sjá 5-6 lið sem geta verið að taka stig hvert af öðru og það er enn skemmtilegra fyrir deildina. Valur og Fram hafa náttúrulega borið höfuð og herðar yfir önnur lið sl. ár en núna eru t.d. Stjarnan, HK og ÍBV líkleg til þess að blanda sér í baráttuna,“ segir Dagný. Valur er núverandi Íslandsmeistari og er einnig komið áfram í bikarnum eftir sigur gegn Fram í átta liða úrslitum. Tólf ár eru síðan Valur varð síðast bikarmeistari en það var árið 2000.

Við ætlum klárlega að taka alla titla sem eru í boði og það er komin tími á bikartitil. Við erum búin að ryðja Fram úr vegi sem er gott. Ég tek það hins vegar skýrt fram að það er ekkert í hendi ennþá,“ segir hún. Dagný er 31 árs og verður samningslaus eftir tímabilið. Hún segir óvíst hvað hún muni gera þegar samningur hennar við Val rennur út.

Ég ætla bara að sjá til hvað ég geri í vor. Ég ætla allavega ekki að vera með neinar yfirlýsingar," segir hún að lokum.