
HSÍ kunngjörði nú í dag val á bestu leikmönnum 1-9 umferðar í N1 deild kvenna. Dagný Skúladóttir, leikmaður Vals, hreppti hnossið en hefur hún verið algjör lykilmaður í góðu liði Vals það sem af er vetri. Lið Vals og Fram sitja á toppi deildarinnar og eiga þau flesta fulltrúa í liðunum. Valur á 3 en Fram 2. Besti þjálfari fyrri helmings Íslandsmótsins var valinn Einar Jónsson, þjálfari Fram. Hér fyrir neðan má sjá þá leikmenn sem voru valdir í lið umferða 1-9.
Lið umferða 1-9 í N1 deild kvenna:
Markvörður | Guðný Jenný Ásmundsdóttir | Valur
Jenný hefur verið jafnbesti markvörður deildarinnar í vetur og vinnur vel með sterkri vörn Valsliðsins sem fengið hefur á sig fæst mörk allra liða í deildinni.
Línumaður | Anna Úrsúla Guðmundsdóttir | Valur
Anna Úrsúla hefur verið í hópi bestu leikmanna deildarinnar um árabil, er öflug bæði í vörn og sókn og drífur félaga sína áfram með leikgleði og baráttuanda.
Vinstra horn og besti leikmaður umferða 1-9 | Dagný Skúladóttir | Valur
Dagný er mikilvægur hlekkur í sterku liði Vals, er öflugur horna- og hraðaupphlaupsmaður og er sterk og sívinnandi í vörninni. Framlag Dagnýjar er Valsliðinu mikilvægt í sókn að titlum, en hún hefur farið mikinn á báðum endum vallarins auk þess sem dugnaður hennar og elja smita út frá sér og skila því sem til þarf til að komast yfir erfiða hjalla.
Hægra horn | Sólveig Lára Kjærnested | Stjarnan
Sólveig Lára hefur sýnt gamalkunna takta í vetur, er öflugur og áræðinn leikmaður sem heggur á hnúta þegar á þarf að halda og er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði Stjörnunnar.
Vinstri skytta | Stella Sigurðardóttir | Fram
Stella hefur brugðist við aukinni ábyrgð í liði Fram af miklum myndarskap, er orðinn ein öflugasta skyttan í deildinni og lætur auk þess hressilega til sín taka í vörninni.
Hægri skytta | Birna Berg Haraldsdóttir | Fram
Hin stórefnilega Birna Berg hefur sýnt það og sannað í vetur að hrósyrði í hennar garð eru fyllilega verðskulduð, öflug skytta sem axlar ábyrgð og dregur vagninn ef með þarf.
Miðjumaður | Ester Óskarsdóttir | ÍBV
Ester hefur stýrt sóknarleik Eyjaliðsins af miklu öryggi í vetur og er orðinn heilsteyptur og stórgóður leikmaður sem lætur að sér kveða á báðum endum vallarins.
Þjálfari | Einar Jónsson | Fram
Framstúlkur hafa unnið sjö deildarleiki í röð undir stjórn Einars, sem fyrir löngu hefur sannað sig sem einn færasti handboltaþjálfari landsins.


Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook