Haukar og FH mætast að Ásvöllum í dag í undanúrslitum Eimskipsbikar karla í handknattleik. Þetta er í annað sinn á aðeins fjórum dögum sem liðin eigast við en þau mættust einnig að Ásvöllum sl. fimmtudag í deildarleik sem FH vann, 26-20.
Liðin hafa alls mæst þrisvar í vetur og Haukar unnið tvo leiki en FH einn leik. Seinni undanúrslitaleikurinn í karlaflokki fer fram á morgun en þá mætast HK og Fram í Digranesi.
Eimskipsbikarkeppni karla | Handknattleikur
Kl. 15:45 Haukar-FH | Schenkerhöllin | Beint á RÚV




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook