Í dag fóru fram úrslitaleikir í heimsmeistarakeppni U20 kvenna í handknattleik en móti fór fram í Tékklandi. Svíþjóð og Frakkland áttust við í leiknum um 1.sætið en Ungverjar og Serbar í leiknum um 3.sætið.
Svíar sigruðu Frakka í úrslitaleiknum 29-22 eftir að hafa leitt í hálfleik 14-7. Sænska liðið mætti mjög ákveðið til leiks og voru með yfirhöndina allan leikinn og virtist sem Frakkar ættu engin svör við varnarleik sænska liðsins. Þetta er í annað skipti sem 92 /93 árgangur Svía verður heimsmeistari og er því greinilegt að þarna eru á ferðinni stelpur sem vert er að fylgjast með í framtíðinni.
Markaskorara Svía:Linn Larsson 5, Vanessa Tellenmark 5, Clara Monti Danielsson 4, Linn Blohm 4, Maria Lindh 3, Carin Strömberg 3, Anna Lagerquist 2, Linnéa Claeson 2 ogLouise Sand 1.
Markahæst Frakka:Sabrina Addellahi 5 mörk.
Ungverjar unnu leikinn um 3ja sætið 26-24.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook