Þriðjudagur, 5. mars 2013 | Þráinn Guðbrandsson | thrainn@sport.is | á Twitter

1.deild karla | Toppliðin eiga leiki í dag | Leikir dagsins

Mynd: Víkingur

Það verða tveir leikir á dagskrá í fyrstu deildinni í handbolta í kvöld. Í Vestmannaeyjum fær topplið ÍBV lið Gróttu í heimsókn, ÍBV er eins og áður kom fram, í fyrsta sæti deildarinnar með tveggja stiga forskot á næstu tvö lið fyrir neðan. Grótta er hinsvegar í fimmta sæti, níu stigum á eftir ÍBV en aðeins einu stigi frá Selfossi, sem hefur lokið einum leik meira en Grótta. Seinast þegar þessi lið mættust vann ÍBV leikinn í Hertz höllinni með einu marki, 24-25 en staðan var 13-16 í hálfleik, Gróttu í vil. Í leiknum þar á undan vann ÍBV heimasigur, nokkuð auðveldlega, 35-18 en staðan var 21-10 í hálfleik. Grótta sækist því eftir fyrsta sigrinu á ÍBV í kvöld en á ekki auðveldan leik fyrir höndum því ÍBV hefur aldrei tapað á heimavelli það sem af er leiktíðar.

Seinni leikur kvöldsins er leikur Víkings og Fylkis í Víkinni, Víkingur situr í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir ÍBV sem er í fyrsta sæti, en með jafn mörg stig og Stjarnan sem hefur lokið einum leik meira. Fylkir er hinsvegar í botn sæti deildarinnar með þrjú stig og er þrem stigum á eftir Þrótti sem er í sætinu fyrir ofan. Víkingur vann fyrsta leik liðanna, 28-23 en staðan var jöfn í hálfleik, 12-12. Víkingur átti svo auðveldara með Fylki í seinni leik liðanna, en liðið vann leikinn 16-31 en staðan var 8-12 í hálfleik.

ÍBV og Víkingur berjast að miklu afli um öruggt sæti í N1 deildinni á næstu leiktíð en liðin hafa unnið sinn leik hvort, ekki bara það því ÍBV vann sinn heimaleik með einu marki, 23-22, og Víkingur vann sinn heimaleik líka með einu marki, og líka 23-22. Því er erfitt að segja að annað þessara liða hafi yfirhöndina en liðin mætast aftur í seinustu umferð deildarinnar og gæti sá leikur verið úrslitaleikur um hvaða lið kemst beint upp um deild.

Leikir dagsins:
18:00 | ÍBV – Grótta | Vestmannaeyjar
19:30 | Víkingur – Fylkir | Víkin