Danska liðið GOG tryggði sér í gær sæti í dönsku úrvalsdeildinni en liðið vann 33-15 sigur á Stoholm og það var 21 sigur liðsins í 22 leikjum. Liðið er með 7 stiga forskot á næsta lið í dönsku deildinni en 3 umferðir eru eftir og er liðið því búið að vinna deildina.
GOG er á uppleið eftir að verða gjaldþrota árið 2010 en við það féll liðið um deild. Fjársterkir aðilar reistu félagið við aftur og var stefnan sett á að leika strax aftur í úrvalsdeildinni. Liðið fékk til sín sterka leikmenn eins og Snorra Stein og hefur árangurinn verið vonum framar.
Það stendur til að bæta enn meira í núna en liðið ætlar að bæta við sig leikmönnum til að eiga roð í bestu liðin í úrvalsdeildinni.







Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook