Þriðjudagur, 5. mars 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

Kynning | Handboltaskóli í Kiel í Þýskalandi

Mynd: Nordic Photos

Kynning | Ákveðið hefur verið að bjóða upp á handboltaskóla í Kiel fyrir íslenska krakka á aldrinum 13-17 ára, í sumar, í samstarfi við Alfreð Gíslason hjá Kiel og þýska þjálfara. Skólinn verður í lok júlí þegar þýsku liðin eru komin af stað af fullum krafti svo hægt sé að fylgjast með æfingum hjá Kiel.

Um er að ræða 6 daga námskeið þar sem krakkarnir munu búa á gistiheimili skammt fyrir utan KIEL, vera í fullu fæði, æfa a.m.k. tvisvar á dag og auk þess verður farið í leikfræði, horft á myndir úr leikjum og farið yfir leikkerfi og annað sem gerist í leikjum. Þau verða einnig frædd um ýmsa hluti sem skipta máli fyrir þá sem vilja ná langt í handbolta, svo sem mataræði, æfingar til að fyrirbyggja meiðsli, reglusemi, styrktarþjálfun, rétt hugarfar og metnað. Þrír íslenskir þjálfarar munu kenna við skólann, Árni Stefánsson, Erlingur Richardsson og Stefán Árnason og munu allir fyrirlestrar og fundir fara fram á íslensku.

Krakkarnir fá æfingasett, bakpoka, myndir og annað handboltatengt efni. Alfreð Gíslason, Guðjón Valur Sigurðsson, Aron Pálmarsson og fleiri leikmenn Kiel koma í heimsókn, vera með æfingar, tala við krakkana og svara spurningum þeirra. Alfreð er búinn að bjóða hópnum að koma og horfa á æfingar hjá liði sínu Kiel.

Þetta er gott tækifæri fyrir krakkana að fá innsýn inn í það hvernig líf atvinnumannsins í handbolta er og hversu mikið þarf að leggja á sig til að ná langt í sinni grein.

Flogið verður til Hamburg aðfaranótt sunnudagsins 21.júlí, áætluð koma á gistiheimilið í Kiel er kl. 8-9 um morguninn, sá dagur verður tekinn rólega og handboltaskólinn byrjar daginn eftir og verður frá mánudegi – laugardags. Heimferð er svo sunnudagsmorguninn 28.júlí og er áætluð lending í Keflavík kl. 9:20.

Einn dagurinn verður í Kiel, þar sem fylgst verður með tveimur æfingum hjá liðinu, heilsað upp á leikmenn og þjálfara, farið í búð félagsins þar sem hægt er að versla búning félagsins og ýmsan varning merktan félaginu. Farið verður í verslunarmiðstöð og fleira skemmtilegt gert.

Það eru þýskir aðilar sem sjá um að skipuleggja allt sem þarf í sambandi við ferðir til og frá flugvelli, gistingu, æfingaaðstöðu, fæði, aðstoð við skipulagningu skólans og allt sem til þarf svo þessi handboltaskóli takist sem best.

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá undirrituðum.
Árni Stefánsson
GSM: 8256000      Netfang: arnistef@simnet.is