Ólafur Indriði Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður og nú fyrirliði Lekhwiya í Katar, er byrjaður að sanka að sér verðlaunum í Katar en liðið varð nýverið bikarmeistari en liðið vann El Jaish 37-34 í úrslitaleik. Þetta er fyrsti titillinn sem Ólafur vinnur með sínu nýja félagi en auk bikarsins fékk Lekhwiya 3,5 milljónir í verðlaunafé.
"Þetta var góð byrjun hjá okkur – við verðum að halda áfram á þessari braut," sagði Ólafur við þetta tilefni.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook