Miðvikudagur, 6. mars 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

Símabikarinn | Notaðu #simabikarinn og þú gætir unnið LG L7 síma!

Það verður hart barist!

Nú líður að helgi en þá verður blásið til stórkostlegrar handboltaveislu en Final 4 í Símabikarnum er leikið um helgina í Laugardalshöllinni. Það eru Síminn og HSÍ sem bera veg og vanda af helginni sem verður með því fyrirkomulagi að undanúrslit og úrslit eru leikin um einu og sömu helgina. Þetta fyrirkomulag þekkist erlendis og verður vonandi til þess að enn meiri spenna og skemmtilegheit verði í úrslitrimmunum.

Síminn verður með skemmtilegan leik í kringum lokahelgina en þeir sem setja hashtaggið #simabikarinn við færslur sem tengjast helginni geta unnið glæsilegan LG L7 síma frá Símanum. Það er um að gera að tjá sig útum allt um helgina og ekki er verra ef einhver mynd fylgir með ásamt #simabikarinn og þá ertu komin í hóp þeirra sem geta unnið verðlaun. Þú getur notað #simabikarinn á Twitter eða Instagram eða bara hvar sem er!

Á mánudaginn verður einn tístari valinn og mun Sport.is birta frétt um það á mánudaginn hver vinnur þennan skemmtilega síma.

Muna #simabikarinn og svo bara að skella sér á leiki helgarinnar!