Miðvikudagur, 16. janúar 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

HM 2013 | Ísland er nánast öruggt í 16 liða úrslitin

Mynd: Hilmar Þór

Eftir úrslit dagsins í B-riðli er það klárt að Íslendingar eru gott sem öruggir með sæti í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Þetta stafar af því að Ísland hefur fjögur stig í 2. sæti riðilsins en liðin í 5. og 6. sæti hafa ekkert stig. Það eru tveir leikir eftir (4 stig í pottinum).

Til þess að Ísland fari ekki upp úr B-riðli þurfa Katar að vinna Chile með fjölmörgum mörkum og leggja Íslendinga síðan á föstudaginn. Ísland þarf að tapa fyrir Dönum í millitíðinni. Þá þurfa Makedónar einnig að vinna annaðhvort Dani eða Rússa svo að við förum ekki upp.

Það þarf því mikið að gerast svo að Íslendingar verði ekki meðal þeirra 16 liða sem keppa í útsláttarkeppninni sem hefst 20. janúar. Sömu sögu má segja um Rússa, Makedóna og Dani en Katar og Chile eru ekki líkleg til afreka. Þó má ekki vanmeta neinn né afskrifa annan.