Miðvikudagur, 16. janúar 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

HM 2013 | Spánverjar jöfnuðu heimsmet Íslendinga með 40 marka sigri á Ástralíu

Það heimsmet sem íslenska landsliðið sett í handknattleik árið 2003 hefur nú verið jafnað. Metið var: stærsti sigur í handboltaleik fyrr og síðar. Sá sigur kom árið 2003 á HM í Portúgal. Sigurinn var gegn Áströlum og enduðu leikar 55-15. Í þeim leik skoraði Guðjón Valur Sigurðsson, núverandi landsliðsfyrirliði, 15 mörk. Nú hefur þetta met verið jafnað en Spánverjar unnu Ástrali með 40 marka mun í gær, 41-11. Íslendingar standa því ekki einir að þessu meti lengur.

Íslendingar hafa þó enn það met að skora flest mörk í leik en það er einmitt 55 mörk. Það met verður vonandi, Íslands vegna, seint slegið.