Hannes Þ. Sigurðsson, Kristján Finnbogason og Gylfi Einarsson þurfa allir að víkja sæti sínu fyrir öðrum leikmönnum en þessir þrír leikmenn léku gegn Pólverjum. Árni Gautur Arason kemur aftur í markið, Gunnar Heiðar Þorvaldsson kemur í stað Gylfa í sóknartengiliðsstöðuna og í stað Hannesar kemur Heiðar Helguson á ný inn í liðið. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst klukkan 17:30
Það kemur á óvart að Hannes þarf að víkja fyrir Heiðari en Hannes var einn besti leikmaður liðsins gegn Pólverjum á föstudaginn. Sölvi Geir Ottesen heldur sæti sínu í miðju varnarinnar. Byrjunarliðið er annars svona:
Árni Gautur Arason
Indriði Sigurðsson
Sölvi Geir Ottesen
Auðun Helgason
Kristján Örn Sigurðsson
Kári Árnason
Stefán Gíslason
Brynjar Björn Gunnarsson
Grétar Rafn Steinsson
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Heiðar Helguson




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook