Miðvikudagur, 10. mars 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

SA Íslandsmeistari í íshokkí

Mynd: Kristján orri

Skautafélag Akureyrar varð í kvöld Íslandsmeistari í íshokkí en liðið vann Björninn 6-2 í úrslitaleik Íslandsmótsins. Björninn byrjaði betur í leiknum og komst yfir á 3. mínútu með marki frá Birgi Jakob Hansen. Skautafélag Akureyrar jafnaði metin á 13. mínútu en þar var að verki Jóhann Már Leifsson en hann lék sig laglega í gegn og setti pökkinn í markið.

SA náði forystu á 30. mínútu með marki Gunnars Darra Sigurðssonar en SA hafði verið í sókn nær allan leikinn og því eiginlega aðeins tímaspursmál hvenær eitthvað myndi undan láta. Andri Freyr Sverrisson skoraði svo aftur á 32. mínútu og nánast gerði útum leikinn 3-1 og SA einfaldlega betra liðið á vellinum. Stefán Hrafnsson skoraði á á 39. mínútu og kom SA í 4-1 og dagskránni svo til lokið.

Á 46. mínútu náði Björninn að minnka muninn en þar var að verði Birgir Jakob. Það kom samt líklega og seint en þó ekki hægt að afskrifa Björninn. Staðan 4-2.

Það voru heimamenn í SA sem skoruðu tvö mörk sem eftir komu það fyrra skoraði Stefán Hrafnsson á á 50. mínútu og svo var það Ingvar Þór Jónsson sem skoraði fallegt mark undir lokin og Skautafélag Akureyrar fagnar gríðarlega.

Þessi úrslitarimma var skemmtileg og spennandi en það var betra liðið sem stóð uppi sem sigurvegari í ár.

  • Facebook
  • Twitter
  • StumbleUpon
  • Digg
  • del.icio.us
  • email