Fimmtudagur, 11. mars 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Usain Bolt og Serena Williams íþróttafólk ársins

Mynd: Nordic Photos

Spretthlauparinn Usain Bolt og tennis stjarnan Serena Williams voru valin íþróttamaður og íþróttakona ársins 2009. Það var Laureus sem sá um valið en þetta er í ellefta skiptið sem verðlaunin eru veitt. Bæði hafa þau unnið nafnbótina einu sinni áður, Bolt í fyrra og Williams árið 2003.

Usain Bolt var ótrúlegur á árinu 2009 en hann bætti heimsmetið í bæði 100 metra og 200 metra hlaupi.

Aðrir sem voru tilnefndir til verðlaunanna í karlaflokki voru langhlauparinn Kenenisa Bekele frá Eþíópíu, spænski hjólreiðakappinn Alberto Contador, Tennisspilarinn Roger Federer frá Sviss, argentíski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi og mótorhjólakappinn Valentino Rossi frá Ítalíu.

Serena Williams vann fjöldan allan af mótum á árinu og þar á meðal opna ástralska mótið og Wimbledon mótið.

Mynd: Nordic Photos

Aðrar sem voru tilnefndar voru til verðlaunanna í kvennaflokki voru spretthlauparinn Sherry-Ann Fraser frá Jamaíku, ítalska sundkonan Federica Pellegrini, bandaríski 400 metra hlauparinn Sanya Richards, þýska sundkonan Britta Steffen og skíðakonan Lindsey Vonn frá Bandaríkjunum.

Hér má sjá íþróttafólk ársins síðustu ár að mati Laureus:

2009Serena WilliamsUsain Bolt
2008Yelena IsinbayevaUsain Bolt
2007Justine HeninRoger Federer
2006Yelena IsinbayevaRoger Federer
2005Janica KostelicRoger Federer
2004Kelly HolmesRoger Federer
2003Annika SörenstamMichael Schumacher
2002Serena WilliamsLance Armstrong
2001Jennifer CapriatiMichael Schumacher
2000Cathy FreemanTiger Woods
1999Marion JonesTiger Woods
  • Facebook
  • Twitter
  • StumbleUpon
  • Digg
  • del.icio.us
  • email