Fyrrum þungavigtaboxarinn Mike Tyson mun snúa aftur í heim íþróttanna. Hann mun þó ekki mæta í box hringinn heldur lætur hann dúfurnar sínar um að keppa við aðrar dúfur í svokölluðum dúfna kappreiðum (pigeon racing).
Mike Tyson hefur um langt skeið ræktað dúfur til kappreiða og fengu bandarískir sjónvarpsmenn þá snilldarhugmynd að láta hans dúfur keppa við aðrar dúfur. Reynslumiklir dúfnaræktendur munu því mæta með dúfurnar sínar til að etja kappi við dúfur Tysons.
Allt mun þetta svo auðvitað vera sýnt í sjónvarpinu á stöðinni Animal planet síðar á árinu. Þátturinn mun heita því skemmtilega nafni Tekist á við Tyson eða á ensku; Taking on Tyson.
Fyrir þá sem ekki þekkja dúfna kappreiðar er fuglunum sleppt í ákveðinni fjarlægð frá heimahögum. Oftast á milli 100 til 1000 kílómetra. Svo er tekinn tíminn hversu lengi þær eru á leiðinni til baka, svo einfalt er það.
Dúfna kappreiðar eru geysivinsæl íþrótt út í heimi. Tævan er mekka dúfna kappreiða en þar eru um 500 þúsund manns sem rækta dúfur í þeim tilgangi að keppa við aðrar dúfur.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook