Vinnumálastofnun hefur samið við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands um að stýra sjálfboðaliðastarfi fyrir um 150 unga atvinnuleitendur. Samningurinn er liður í vinnumarkaðsátakinu Ungt fólk til athafna. Áætlað er að innan íþróttahreyfingarinnar í landinu sinni sjálfboðaliðar að jafnaði tæplega 1.000 ársverkum í stjórnum og nefndum. Þá er ekki talið hið mikla sjálfboðaliðastarf sem fram fer við æfingar, mótahald, keppnisferðalög og mörg önnur störf sem unninn eru innan hreyfingarinnar en það hleypur á þúsundum ársverka.
Vinnumálastofnun hefur samið við Íþrótta- og Ólympísamband Íslands um að skipuleggja og stjórna sjálfboðaliðastarfi fyrir um 150 unga atvinnuleitendur á á þessu ári. Samningurinn er hluti af átaki félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Vinnumálastofnunar, Ungt fólk til athafna, sem miðar að því að koma á fót um 2.200 menntunar- og starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum fyrir unga atvinnuleitendur á þessu ári.
Samningurinn við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands tekur til ungmenna á aldrinum 18-24 ára sem eru tryggð innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Miðað er við að hver sjálfboðaliði sinni verkefnum að lágmarki 15 stundir á viku. Ráðnir verða allt að fjórir verkefnisstjórar til að annast fræðslu fyrir sjálfboðaliðana, aðstoða við val á verkefnum og hafa eftirlit með þátttöku og ástundun. Vinnumálastofnun greiðir fyrir störf verkefnisstjóranna. Íþrótta- og Ólympíusambandið sér til þess að sjálfboðaliðarnir séu tryggðir við störf sín en Vinnumálastofnun stendur straum af kostnaði vegna þess.
Áratuga reynsla er af sjálfboðaliðastörfum innan íþróttahreyfinganna í landinu.
„Það samstarf sem efnt hefur verið til milli stjórnvalda og félagasamtaka hér á landi til þess að takast á við atvinnuleysi ungs fólk með fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum er einstakt og ég veit til þess að aðrar Evrópuþjóðir eru farnar að horfa til Íslands sem fyrirmyndar í þessum efnum“ sagði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra við undirritun samningsins í dag.
Ólafur Rafnsson forseti Íþrótta- og Ólympíusambandsins fagnaði þessi samstarfi og sagði við undirritunina „ Það er mikil viðurkenning fyrir Íþrótta- og Ólympíusambandið og íþróttahreyfinguna að félags- og tryggingasmálaráðuneytið og Vinnumálstofnun skuli hafa leitað til hreyfingarinnar þegar kemur að þeim vinnumarkaðsúræðum sem verið að er vinna að hjá Vinnumálastofnun þessa daganna.
Um 2.000 ungmenni hafa þegar verið virkjuð í fjölbreyttum úrræðum á þessu ári
Á þessu ári hefur Vinnumálastofnun tryggt um 2.000 ungmennum fjölbreytt náms- og starfstengd vinnumarkaðsúrræði hjá símenntunar- og fræðslumiðstöðvum, í framhaldsskólum í sjálfboðaliðastörfum hjá Rauða krossi Íslands og nú hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Alls er ráðgert að koma á fót 2.200 úrræðum af þessu tagi á árinu.
Nýlega var opnuð miðstöð átaksins Ungt fólk til athafna við Suðurlandsbraut þar sem ráðgjafar Vinnumálastofnunar taka á móti ungum atvinnuleitendum og kynna þeim þau fjölmörgu vinnumarkaðsúrræði sem nú standa til boða. Þegar hefur verið tekið á móti fjölda ungmenna sem ýmist eru að hefja þátttöku í fjölbreyttum náms- og virkniúrræðum þessa dagana eða eru þegar byrjuð.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook