Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Bakarameistaraleikurinn | Fyrirtækjasala Vodafone datt í lukkupottinn

Starfsfólk Vodafone með bakkelsið

Í dag var dregið í leik Bakarameistarans og Sport.is en þetta var þriðja kræsingarveislan sem fyrirtæki fékk sent til sín. Það var fyrirtækjasala Vodafone sem datt í lukkupottinn en starfsmenn hennar svöruðu spurningum vikunnar rétt. Þau fengu senda til sín 16 manna veisluköku og brauðkörfu með áleggi og öllu tilheyrandi. Það þarf ekki að taka fram að þessir heppnu verðlaunahafar voru alsælir með sendinguna og stefndu á að taka langt og gott kaffi til að gæða sér á kræsingunum.

Þetta var þriðja fyrirtækið sem fær til sín veislu frá Bakarameistaranum en Umboðsmaður skuldara og Actavis höfðu áður fengið gjafakörfur og kökur.

Í næstu viku verður í boði heil matarveisla handa allt að 10 manns í þesum létta leik okkar og hér að neðan má sjá myndir af því sem koma skal. Spurningar fyrir leikinn eru einnig hér að neðan og við hvetjum öll fyrirtæki að taka þátt til að eiga möguleika á að vinna glæsilega veislu frá Bakarameistaranum.

Spurningar 26. ágúst-1. september:
1. Hverjir eru Íslandsmeistarar í handbolta?
2. Með hvaða þýska liði leikur Aron Pálmarsson?