Keníbúinn David Rudisha sem sló 13 ára gamalt heimsmet í 800 metra hlaupi karla fyrir rúmri viku síðan, sló heimsmetið aftur um síðustu helgi.
David Rudisha sem er aðeins 21 árs gamall bætti gamla heimsmetið í Berlín fyrir rúmri viku síðan er hann hljóp á tímanum 1:41,09 mínútu.
Rudisha var einn af keppendum á Dementamóti í Brussel í Belgíu síðsutu helgi og sigraði þá með sannfærandi hætti og sló hann eigið heimsmet.
Rudisha hljóp á 1:41,01 mínútu og fagnaði hann því örðu heimsmetinu sínu á aðeins tíu dögum.
David Rudisha lofar áhorfendum sínum að hann muni halda áfram “að afreka eitthvað stórkostlegt.” einsog hann orðaði það.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook