Norðurlandamótið 20 ára og yngri í frjálsíþróttum fór fram síðustu helgi á Akureyri. Mótið tókst vel í alla staði, en þarna var efnilegasta frjálsíþróttafólk Norðurlandanna mætt á svæðið.
Hér má sjá það helsta af mótinu:
Sveinbjörg Zophoníasdóttir náði í einu verðlaun Íslands á mótinu, er hún varð önnur í langstökkinu með 5,76 metra. Hanna Wiss frá Finnlandi bar sigur úr bítum, en hún stökk lengst 5,95 metra. Sveit Íslands í 4×400 metra boðhlaupi varð í fjórða sæti eftir mikla baráttu við sænska liðið sem hafði loks betur eftir mikla og spennandi keppni.
María Ósk Felixdóttir bætti eigið met í sleggjukasti um 6 sentimetra í stúlknaflokki 17-18 ára, sett fyrr á þessu ári, er hún kastaði 48,96 metra. Fimm stúlkur áttu árangur yfir 50 metrana á mótinu í þessari grein, en Katja Vanes frá Noregi sigraði með 56,06 m kasti. Mjög jafn og góður árangur var í 100 metra grind kvenna en allir keppendur hlupu undir 15 sek. Sigurvegari var Lotta Harala með 14,45 sek. á nýju norsku meti í sínum aldursflokki, en María Rún Gunnlaugsdóttir hljóp á 14,91 sek.
Finnar unnu stangarstökkskeppni karla tvöfalt, en yfirburðir þeirra í þessari grein voru nokkuð afgerandi. Þeir stukku 4,98 og 4,88 metra en Petter Olsson frá Svíþjóð stökk 4,48 metra. Norska stúlka Katarina Mögenburg sigraði í hástökki eftir mikla keppni við Linn Gustavsson frá Svíþjóð en þær stukku báðar 1,75 metra.
Vladimir Vukicevic frá Noregi sigraði 110 metra grindarhlaup karla á mjög góðum tíma 14,05 sekúndur., en hann er einn besti grindahlaupari Evrópu um þessar mundir. Hann varð 2. sæti í Super League Evrópubikarkeppninnar, sem fram fór um miðjan júní sl. í Bergen. Aníta Hinriksdóttir og Stefán Sigurðsson hlupu 1.500m og 800 m hlaup fyrir Íslands hönd á mótinu og stóðu sig vel, en þau hafa stórbætt sig á þessu ári bæði tvö.
Norðmenn unnu sameiginlega stigakeppni karla og kvenna á mótinu. Þeir hlutu 165 stig gegn 162 stigum Svía, en með úrslit réðust í 4×400 metra boðhlaupum karla og kvenna, en Norðmenn sigruðu í báðum hlaupunum. Finnar voru í þriðja sæti einu stigi á eftir Svíum, en þeir sigruðu kvennakeppnina með 88 stig, en Svíar aftur voru með besta karlalið keppninnar. Fyrir íslenska liðið var við ofurefli að etja, enda flestir keppendur liðsins 2-3 árum yngri en keppendur annarra Norðurlanda. Eigi að síður náði íslenska kvennaliðið betri árangri en það danska.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook