Fimmtudagur, 2. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Landsliðshópur Íslands í alpagreinum valinn

Mynd: Skíðasamband Íslands

Valinn hefur verið landsliðshópur alpagreina á skíðum fyrir veturinn 2010-2011.

Fremstur í flokki fer Björgvin Björgvinsson sem tekur þátt í Heimsbikarmótum vetrarins í svigi ásamt því að vera á heimsmeistaramótinu í svigi í Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi í febrúar. Fjalar Úlfarsson verður aðstoðamaður Björgvins í vetur. Landsliðshópurinn er skipaður eftirfarandi: Erla Ásgeirsdóttir BBL, Fanney Guðmundsdóttir Ármanni, Freydís Halla Einarsdóttir Ármanni, Íris Guðmundsdóttir SKA, Katrín Kristjánsdóttir SKA, María Guðmundsdóttir SKA, Brynjar Jökull Guðmundsson Víking, Jakob Helgi Bjarnason Dalvík, Jón Gauti Ástvaldsson Víking, Róbert Ingi Tómasson SKA, Sigurgeir Halldórsson SKA og Sturla Snær Snorrason Ármanni. Nýraðinn landsliðsþjálfari, Ånen Giverhaug, skipuleggur og stýrir landsliðshópnum. Guðmundur Sigurjónsson mun sinna sérverkefnum fyrir landsliðshóp kvenna.

Karla landsliðshópur SKÍ var á sinni fyrstu samæfingu um síðustu helgi, landsliðsþjálfarinn stjórnaði þrekæfingum. Landsliðshópurinn fer væntalega til Noregs um miðjan september þar sem þeir verða við æfingar á Juvas jökli.

Æfingahópur, sem gefst kostur á að taka þátt í fyrstu skíðaæfingu landsliðshóps í Noregi í september, hefur einnig verið valinn.
Æfingahópinn skipa:
Elín Jónsdóttir Ísafirði, Erla Guðný Helgadóttir KR, Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir Ármanni, Thelma Rut Jóhannesdóttir Ísafirði, Einar K. Kristgeirsson IR, Hjörleifur Einarsson Dalvík og Magnús Finnsson SKA.

Okkar besta skíðakona hún Íris Guðmundsdóttir datt í stórsvigsæfingu í gær og slasaðist á hné. Íris er í Noregi núna þar sem hún mun gangast undir nánari læknisskoðun. Íris keppti fyrir hönd Ísland á vetrar Ólympíuleikunum í Kanada í febrúar 2010.