Íslendingar gerðu það gott á Norðurlandamótinu í kraftlyftingum sem fram fór í Noregi um síðustu helgi.
Kartflyftingakonan úr Ármanni, María Guðsteinsdóttir, varð Norðurlandameistari í opnun flokki kvenna í 67,5 kg þyngdarflokki. María lyfti 165 kg í hnébeygjum, 102,5 kg í bekkpressu og 172,5 kg í réttstöðulyftu, samanlagt 440 kg. María settu með þessum árangri Íslandsmet í bekkpressu og réttstöðulyftu. María bætti þetta svo enn betur í bekkpressunni á sunnudaginn, þegar hún varð Norðurlandameistari í 75 kg flokki, lyfti 107,5 kg í bekknum og setti þar með eigið Íslandsmet. María endaði svo í 8.sæti í stigakeppni kvenna samkvæmt stigatöflu Alþjóða Kraftlyftingasambandsins. Lára Bogey Finnbogadótttir frá Kraftlyftingafélagi Akraness vann til silfurverðlauna í þyngsta flokki kvenna, opnum flokki 90+ kg. Lára Bogey, sem var að keppa á sínu fyrsta alþjóðamóti setti fjögur Íslandsmet í bekkpressu 80kg, réttstöðulyftu 140kg, hnébeygju 115kg og í samalögðu 335kg. Auðunn Jónsson úr kraftlyftingafélagi Breiðabliks vann til silfurs á mótinu í yfirþungavigt, 125+ kg þyngdarflokki. Einnig vann hann til bronsverðlauna í stigakeppni allra karlakeppnisflokka mótsins.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook