Fimmtudagur, 2. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Sænska meistaramótið í fjölþrautum næstu helgi

Mynd: Einkasafn

Um næstu helgi verður sænska meistaramótið í fjölþrautum haldið í Huddinge sem er rétt fyrir Stokkhólm í Svíþjóð. Yfir 60 keppendur taka þátt í mótinu og eru fjórir Íslendingar þar á meðal.

Kristín Birna Ólafsdóttir og Arna Stefanía Guðmundsdóttir úr ÍR keppa á mótinu auk Sveinbjargar Zophoníasdóttur frá USU og Inga Rúnars Kristinssonar úr Breiðablik.

Kristín Birna og Arna Stefanía keppa í sjöþraut kvenna, Sveinbjörg í sjöþraut stúlkna 19 ára og yngri og Ingi Rúnar keppir í tugþraut 17-18 ára. Kristín Birna á best 5402 stig frá árinu 2006 og 5342 stig síðan 2008. Arna Stefanía á best 4936 stig með meyja áhöldum síðan á Norðurlandamótinu í vor.

Sveinbjörg Zophaníasdóttir var önnur í langstökkinu um síðustu helgi á Norðurlandamótinu 20 ára og yngri sem fram fór á Akureyri síðustu helgi. Hún stökk best 5,76 metra.