Laugardagur, 4. september 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Michael Dawson frá í 6-8 vikur

Mynd: Nordic Photos

Michael Dawson, leikmaður Tottenham og enska landsliðsins, verður frá keppni í 6-8 vikur vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik Englendinga og Búlgaríu í gær. Enska liðið vann öruggan 4-0 sigur en það var slæmt fyrir liðið að missa Dawson í meiðsli. Enska liðið hefur ekki getað leikið fram Rio Ferdinand en hann er að jafna sig eftir meiðsli sem hann varð fyrir á HM í S-Afríku.

Enska liðið mætir Sviss á þriðjudaginn og mun Fabio Capello kalla inn annan leikmann fyrir Dawson.