Sunnudagur, 5. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Ásdís Hjálmsdóttir í 3.sæti á Ítalíu

Ásdís HJálmsdóttir mundar spjótið

Ásdís Hjálmsdóttir endaði í 3.sæti í fyrradag í spjótkasti kvenna á Ítalíu. Ásdís kastaði 57,18 metra, en það munaði aðeins nokkrum sentimetrum að hún hefði hreppt annað sætið. Hún sigraði konu frá Slóveníu sem er í 4 sæti á heimslista Alþjóða frjálsíþróttasambandsins, sem er frábær árangur.

Christina Obergföll frá Þýskalandi sigraði, en hún kastaði rúmlega 63 metra. Ásdís var að vonum sátt með árangurinn hjá sér, en hún er núna á leiðinni í frí vegna þess að hún hefur átt við leiðinlega flensu síðustu tvær vikur. Ásdís átti ekki von á því að hún gæti tekið þátt í  mótunum sem farið hafa fram á Ítalíu en hún lét sig hafa það.