Sundsamband Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem það gagnrýnir fréttaflutning Ríkisútvarpsins af málefnum sundmanna. Þar segir að rangt hafi verið farið með staðreyndir í frétt sem tengdist Jakobi Jóhanni og kostnaðar sem hann er sagður þurft að bera sjálfur. Sambandið segir fréttina alranga og vill koma þessari leiðréttingu á framfæri.
“Í fréttum Sónvarps RÚV í gærkvöldi var eftirfarandi haldið fram af íþróttafréttamanni RÚV:
„Í sumar fór Jakob Jóhann Sveinsson sem eini íslenski keppandinn á Evrópumeistaramótið í Búdapest. Þar komst Jakob meðal annars í undanúrslit í 200 metra bringusundi. Vegna fjárhagsstöðu íslenska sundsambandsins þurfti Jakob að standa straum af öllum kostnaði sjálfur vegna þátttöku í mótinu. Reyndar ákvað Byr h/f að styrkja hann eftir að á mótið var komið en ljóst er að íslenskt afreksfólk í sundi fær ekki þann stuðning sem þyrfti til að ná enn lengra.“
Í beinu framhaldi var klipptur inn hluti viðtals sem tekið var við formann SSÍ fyrr um daginn um málefni Sindra Þórs Jakobssonar og átti ekki heima í umræðu um EM50 í sumar.
Sá hluti fréttarinnar þar sem ræddur er kostnaður sundmannsins Jakobs Jóhanns Sveinssonar vegna þátttöku í EM50 í sumar er algerlega rangur. Jakob Jóhann Sveinsson hefur ekki þurft að greiða kostnað vegna þátttöku sinnar á mótinu sjálfur úr eigin vasa. Sundsamband Íslands greiddi ferðakostnað Jakobs og þjálfara hans Jacky Pellerin, hótel , uppihald og annan kostnað þeirra í Búdapest. Að halda öðru fram er ekki sannleikanum samkvæmt og miður að íþróttadeild RÚV skuli senda út frétt á þennan hátt. Það er einnig miður að slíkar tilhæfulausar aðdróttanir um fjárhagsstöðu SSÍ skuli hafa verið sendar út.
Sá hluti fréttarinnar sem snýr að styrk Byrs h/f er rangtúlkun á staðreyndum. Byr h/f og SSÍ gerðu með sér samning sem kveður á um að Byr h/f styrkir SSÍ til að greiða útlagðan kostnað vegna æfinga- og keppnisferðar Jakobs Jóhanns í Frakklandi í aðdraganda EM50. Upphæðirnar sem nefndar eru í samningnum eru í samræmi við þær tölur sem fjölskylda Jakobs Jóhanns og þjálfari hans Jacky Pellerin gáfu upp í undirbúningi samningsins. Samningurinn var svo gerður formlega og opinberaður á meðan á EM50 stóð.
Það sem rétt er í þessum hluta fréttarinnar er að íslenskt afreksfólk í sundi fær ekki þann stuðning (frá hinu opinbera) sem þyrfti til að ná enn lengra.
Það er einhugur innan sundhreyfingar að ekki er við hæfi að íslenskt afreksfólk í sundi þurfi að greiða úr eigin vasa þátttöku sína á mótum eins og EM50 og það er einnig einhugur innan sundhreyfingarinnar að afreksmarkmið og skilgreiningar verði skýrari. Nægir að benda á samþykkta afrekstefnu SSÍ frá síðasta sundþingi.
Hvað varðar Sindra Þór Jakobsson þá liggur fyrir að Sindri Þór sinnti ekki ítrekuðum óskum SSÍ um samtöl áður en af ríkisborgaraskiptum hans varð. SSÍ óskar Sindra alls velfaranaðar á nýjum vettvangi og býður hann velkominn í raðir íslenskra sundmanna kjósi hann að snúa til baka.”





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook