Frábær árangur náðist hjá keppendunum Íslendinga á sænska meistaramótinu í fjölþraut sem fram fór í Huddinge í Svíþjóð um helgina. Arna Stefanía Guðmundsdóttir úr ÍR sló meyjarmetið í sjöþraut með 5029 stigum, en fyrra metið átti Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni síðan 2006.
Arna Stefanía var að keppa við stelpur fæddar árinu eldri og bætti meyjarmetið um 34 stig. Arna Stefanía varð í 1.sæti í flokki 16 ára. Kristín Birna Ólafsdóttir úr ÍR náði öðru sæti í kvennaflokki með 5363 og er þetta næst besti árangur hennar í sjöþraut, en hún náði 5402 stigum árið 2006. Kristín Birna fór í aðgerð fyrir einu og hálfu ári síðan og keppti mjög lítið þar til í ár, og ljóst er að hún er komin á beinu brautina á ný. Ingi Rúnar Kristinsson úr Breiðablik var með 6111 stig og endaði í 2.sæti í sínum aldursflokki, en þetta er langt frá hans besta árangri. Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr USÚ varð í þriðja sæti í 19 ára flokknum með 5044 stig. Þetta er næst besti árangur hennar í þraut, en hún á best 5123 stig síðan fyrr í sumar.
Þráinn Hafsteinsson þjálfari ÍR, fylgdi krökkunum á mótinu og var mjög ánægður með sína keppendur. “Árangurinn var rosalega flottur hjá krökkunum. Gott að sjá Kristín Birnu koma aftur svona sterk inn og Arna er búin að sanna sig að hún er ein af okkar allra efnilegustu íþróttamönnum sem við eigum hér á Íslandi, standartinn er hár hjá þessu íþróttafólki,“ sagði Þráinn.
Arna bætti sig í fjórum greinum en hún hljóp hraðast allra kvenna á þessu ári í 800 metra hlaupinu á tímanum 2:14,67. Hún bætti sig einnig í langstökki, spjótkasti og kúluvarpi. Arna kastaði spjótinu 36,82 metra, og kúlunni 10,10 metra. Í langstökkinu stökk hún 5,41 metra. Kristín Birna bætti sig í spjótkasti með því að kasta spjótinu 36,82 metra. Kristín bætti sig líka í hástökki, en hún stökk 1,64 metra. Kristín Birna lenti í mótvindi í tveim greinum og telur Þráinn að það hafi stolið 80-100 stig frá henni.
Hægt er að sjá nánari úrslit í hverri grein hjá þeim á fri.is






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook