Taekwondosamband Íslands verður með æfingar og sýningar með þeim systrum Chloe og Grace Bruce dagana 18. september í Iðu Selfossi og 19. september Ármanni, íþróttaheimilinu við gervigrasið í Laugardal.
Dagskrá báða daganna:
kl. 13-14:20 Taekwondo æfingabúðir
kl. 14:20-14:50 Sýning fyrir almenning
kl. 14:50-16:00 Æfingabúðir fyrir alla aðra, t.d. fimleikafólk, free runners og parkour
Chloe og Grace Bruce eru heimsfrægar og hafa leikið í fjölda auglýsinga, tölvuleikjum, tónlistarmyndböndum, kvikmynda og unnið til margra verðlauna. Þetta er í fyrsta sinn sem þær koma til Íslands.
Þetta er sýning fyrir alla og kostar 1000 kr á sýninguna og 500 fyrir 10 ára og yngri.
Hægt er að fara inn á heimsíðu þeirra og skoða myndir á youtube, þær eru rosalegar.
http://www.chloebruce.co.uk/





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook