Mánudagur, 6. september 2010 | Ritstjórn | ritstjorn@sport.is

Íslandsmet hjá Steini í þríþraut

Mynd: Hlaup.is

Þríþrautarkappinn Steinn Jóhannsson náði frábærum árangri í Ironman sem haldin var í Köln um helgina (5. sept). Hann setti nýtt Íslandsmet og fór þrautina á 9:24:46. Hann fór einstakar greinar á eftirfarandi tímum: Sund 57:16, hjól 5:07:35 og hlaup 3:12:53.

Steinn var í 14 sæti yfir heildina en í 2 sæti í sínum aldursflokki.

Hægt er að sjá úrslitin á vef þríþrautarinnar í Köln og nánari upplýsingar um árangur Steins þar einnig.