Mánudagur, 6. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Þorsteinn Ingvarsson náði silfri á Norðurlandamóti um helgina

mynd: avisa valdres

Norðurlandamót 20 til 22 ára fór fram um helgina í Svíþjóð í frjálsum íþróttum. Fimm keppendur tóku þátt frá Íslandi. Árangurinn þeirra var nokkuð góður.Stærsti árangurinn var hjá  Þorsteini Ingvarssyni úr HSÞ, sem  náði silfri í langsökki með stökki upp á 7, 52 metra.

Bjartmar Örnuson úr UFA hljóp 800 metrana á 1:53,94 mínútum og endaði í áttunda sæti. Tveir kappar kepptu í spjótkasti, en þeir voru Örn Davíðsson úr FH sem kastaði spjótinu 62,55 metra og varð í 11.sæti, og Guðmundur Sverrirsson úr ÍR sem kastaði spjótinu 60,89 metra og endaði í 12.sæti. Fjóla Signý Hannesdóttir úr HSK náði ekki að klára keppni.