Þriðjudagur, 7. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Roger Federer komin í 8-manna úrslit

Mynd: Nordic Photos

Roger Federer frá Sviss sem er fimmfaldur meistari,  er kominn í átta manna úrslit á opna bandaríska meistaramótinu í tennis. Hann fór létt með Austurríkismannin Jurgen Melzer í þrem settum, 6-3, 7-6 og 6-3 í gærkvöldi. Svisslendingurinn mun mæta Svíanum Robin Söderling í átta manna úrslitum á mótinu, en hann stöðvaði sigurgöngu Federes á opna franska meistaramótinu fyrr á þessu ári.

Robin Söderling sigraði Spánverjann Albert Montanes í fjórum settum, en Spánverjinn var einn af sex löndum sínum sem voru í sextán manna úrslitum.

Í kvennaflokknum sigraði Caroline Wozniacki, frá Danmörku, fyrrverandi meistarann, Mariu Sharapov frá Rússlandi í tveimur settum, 6-3 og 6-4. Svetlana Kuznetsova frá Rússlandi, fyrrverandi meistari á opna bandaríska mótinu, féll einnig úr leik, eftir að hafa tapað gegn Dominik Cibulkov frá Slóvakíu í tveim settum.