Maria de Villota, varaökumaður fyrir Marussia liðið í formúlu 1 kappakstrinum missti annað augað á dögunum þegar hún lenti í árekstri við æfingaakstur í Bretlandi fyrr í vikunni.
De Villota, sem er fyrsta konan til þess að starfa sem ökumaður í formúlu 1 í tvo áratugi, klessti þá á flutningabíl en talið er að hún hafi verið á um það bil 200 km hraða þegar slysið varð. Hún hlaut alvarleg meiðsl á höfði auk þess sem hún missti hægra augað og samkvæmt BBC er líðan hennar stöðug en alvarleg.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook