Spænski ökuþórinn Fernando Alonso, sem keppur undir merkjum Ferrari, bar sigur úr býtum í Formúlu 1 kappakstrinum sem fram fór í Hockenheim í Þýskalandi í dag.
Alonso hafði forystuna allt frá fyrsta hring í dag og er nú kominn með 34 stiga forystu í stigakeppni ökumanna. Sebastian Vettel sem keppir fyrir Redbull varð annar í dag en hann gæti þó fengið refsingu fyrir að hafa brotið keppnisreglur í dag og mun því væntanlega falla niður í fimmta sæti.
Red Bull er hefur ennþá stórt forskot í keppni bílaframleiðanda en þeir hafa 238 stig, 61 stigi meira en Ferrari sem er í öðru sæti með 177 stig.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook