Mánudagur, 4. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

Gamla myndbandið | Allt sauð uppúr eftir leik Keflavíkur og Snæfells 2005

Nú leikur Hlynur með Sundsvall Dragons

Í gamla myndbandinu í dag höldum við okkur við körfuboltaþema en árið 2005 áttust Keflavík og Snæfell við í úrslitarimmunni sjálfri. Keflavík vann titilinn þetta árið en hér er 8 mínútna langt myndband frá þriðja leik liðanna sem Keflavík vann með minnsta mun. Eftir leikinn, sem var afar harður, ætlaði allt að sjóða uppúr og lág við slagsmálum. Þá er rúsínan í pylsuendanum skemmtilegt viðtal Svala Björgvins við Hlyn Bæringsson, þáverandi leikmann Snæfells.