Tveir leikir fara fram í kvöld í Meistaradeild Evrópu. Þýsku meistararnir Dortmund mætir úkraínska liðinu Shaktar Donetsk.
Sá leikur er þó heldur betur í aukahlutverki í kvöld því í aðal leik kvöldsins snýr Cristiano Ronaldo aftur á gamlar slóðir í stórleik Man Utd og Real Madrid. Mourinho, þjálfari Real Madrid, sagði fyrir fyrri leik liðanna að allur heimurinn myndi fylgjast með og að allir hinir leikir 16-liða úrslita væru bara í einhverju aukahlutverki. Það eru stór orð en þó, í raun, sönn orð. Því leikir verða hreinlega ekki mikið stærri en þessi.
Endurkoma C. Ronaldo gerir þessa viðureign enn skemmtilegri en hann spilaði, eins og frægt er, fyrir Man Utd í sex ár og fann sjö bikara á þessum árum. Úrvalsdeildinna þrisvar og einu sinni Meistaradeild Evrópu. Tímabilið 2007/08 skoraði hann heil 42 mörk og svo sumarið 2009 fór hann til Real Madrid fyrir 80 milljónir punda og gerði hann að dýrasta leikmann heims.
Fyrri leikur liðanna var stórskemmtilegur. Welbeck kom Man Utd mönnum yfir eftir tuttugu mínútna leik en tíu mínútum síðar jafnaði Real Madrid og af sjálfsögðu var það snillingurinn, Ronaldo, sem gerði það, með frábærum skalla. Bæði lið fengu færi til þess að komast yfir en leikurinn endaði 1-1 og því getur hreinlega allt gerst í kvöld.
Man Utd skoruðu dýrmætt útivallarmark í fyrri leik liðanna og telja margir liðið vera því í eilítið sterkari stöðu en mótherjar þeirra. Þetta forskot er þó ansi hæpið enda er harla ólíklegt að enska stórliðið muni halda hreinu gegn ógnarsterku sóknarliði Real Madrid.
Bæði lið hafa verið í frábæru formi undanfarnar vikur. Man Utd hafa raðað inn sigrunum og er meir og minna búið að vinna úrvalsdeildinna á meðan Real Madrid hafa verið að finna sig eftir slappt gengi framan af leiktíðinni. Tveir sigrar gegn Barcelona undanfarnar daga verður að teljast sem ansi gott veganesti fyrir leik sem þennan.
Eitt er nokkuð víst, leikurinn í kvöld verður stórskemmtilegur og fullur af mörkum.
Hin leikur kvöldsins fellur mikið í skugga stórleiksins umtalaða en er þó ansi áhugaverð rimma. Þýsku meistaranir mæta Úkranísku meisturunum. Dortmund og Shaktar eru bæði þekkt fyrir frábæran sóknarleik og fyrri leikur liðana var frábær skemmtun sem endaði með jafntefli, 2-2.
Dortmund er því í mjög sterkri stöðu þar sem liðið skoraði tvö útivallarmörk sem gerir það að verkum að komist liðið í eins marks forystu í leik kvöldsins þar Shaktar tvö mörk til þess sigra leikinn. Skori liðið aðeins eitt mark í þeirri stöðu sigrar Dortmund á því að hafa skorað fleiri útivallarmörk.
Shaktar þarf því að byrja leikinn vel ætli liðið sér að komast í 8-liða úrslitin.
Kl: 19:45 Man Utd – Real Madrid
Kl: 19:45 Dortmund – Shaktar






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook