Miðvikudagur, 6. mars 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

1. deildin | Úrslitin eftir bókinni í gærkvöldi

Jón skoraði 11 mörk í gær. Mynd: Pétur Hjörvar Þorkelsson

Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í handknattleik í kvöld. Víkingar unnu Fylki á heimavelli og ÍBV vann Gróttu í Vestmannaeyjum. Úrslitin semsagt eftir bókinni þar sem að sigurlið kvöldsins verma tvö efstu sæti deildarinnar og stefnir í spennandi lokaumferðir en Víkingur og ÍBV mætast í lokaumferðinni og aðeins munar tveimur stigum á liðunum og er jafnt hjá þeim í innbyrðisviðureignum.

Víkingar náðu aldrei að hrista Fylkismenn af sér í gærkvöldi en staðan í leikhléi var 17-12, Víking í vil. Fylkismenn skoruðu þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks en sá hálfleikur var afar kaflaskiptur. Fylkismenn minnkuðu muninn minnst í 2 mörk, 18-16 og höfðu tækifæri á því að minnka í eitt en þá kom góð rispa hjá heimamönnum þar sem þeir skoruðu fjögur í röð. Fylkismenn gáfust ekki upp og náðu aftur að minnka í þrjú mörk þegar 7 mínútur voru eftir en þá virtist bensínið vera búið á þeim bænum og unnu Víkingar sjö marka sigur, 36-29. Sigurinn var helst til stór miðað við gang leiksins en þegar tæp mínúta var eftir höfðu Fylkismenn tækifæri á að minnka í eitt mark en köstuðu boltanum tvisvar glæfralega frá sér og uppskáru hraðaupphlaupsmörk í bakið. Markahæstur hjá Víking í leiknum í kvöld var Jón Hjálmarsson með 11 mörk en Óðinn Stefánsson skoraði 8 hjá Fylki sem vermir botnsætið með 3 stig.

ÍBV fór nokkuð þæginlega í gegnum Gróttu en sá leikur var ekki ósvipaður leiknum í Fossvoginum. ÍBV hafði 17-12 forystu í hálfleik en Grótta náði að minnka muninn í 2 mörk, 24-22. Þá kom  hinsvegar frábær kafli hjá Eyjamönnum sem uppskáru að lokum níu marka sigur, 32-23. Andri Heimir Friðriksson skoraði mest fyrir ÍBV í dag eða 9 mörk en hjá Gróttu var Kristján Orri Jóhannsson markahæstur með 5 mörk.

ÍBV 32-23 Grótta (17-12)
Víkingur 36-29 Fylkir (17-12)