Miðvikudagur, 10. mars 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Kobe tryggði Lakers sigur | Úrslit leikja

Los Angeles Lakers tók á móti Toronto Raptors í nótt og tryggði Kobe Bryant liði Lakers sigurinn með körfu á lokasekúndum leiksins. Lokatölur voru því 109-107. Kobe skoraði 32 stig fyrir Lakers en atkvæðamestur hjá Toronto var Chris Bosh með 22 stig.  Hedo Turkuglu kom aftur í lið Toronto eftir meiðsli en hann átti ekki góðan leik. Hann hitti aðeins úr tveimur af sjö skotum sínum og tapaði fjórum boltum.

Mynd: NordicPhotos

Kobe Bryant var ánægður með sigurinn, sérstaklega þar sem hann klikkaði skoti á lokasekúndum sem hefði jafnað leikinn, gegn Orlando Magic í síðasta leik.  “Þetta var alveg eins skot og á móti Orlando, nema nú hitti ég”.

Sport.is hefur þegar fjallað um fyrri leiki gærkvöldsins en úrslit úr hinum leikjunum eru eftirfarandi:

Portland Trail Blazer 88-81 Sacramento Kings

Milwaukee Bucks 86-84 Boston Celtics

Chicago Bulls 108-132 Utah Jazz

-Fimmta tap Bulls í röð.