Eins og fram kom í morgun á Sport.is tekur KR á móti Keflavík í toppslag Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Leikurinn er sérstaklega spennandi fyrir þær sakir að takist KR-ingum að sigra leikinn í kvöld verða þeir Deildarmeistarar og fá afhentan bikar. Keflvíkingar og Grindvíkingar eiga ennþá möguleika á því að verða deildarmeistarar en KR-ingar klára dæmið í kvöld takist þeim að sigra Keflvíkinga. Mistakist þeim að sigra geta þeir ennþá tryggt sér titilinn með sigri á Snæfelli í næstu umferð.
Sport.is verður á leiknum í kvöld og kemur með ítarlega umfjöllun auk myndasíðu og Sportvarpsviðtölum að leik loknum.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook