Miðvikudagur, 17. mars 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Lebron með þrefalda tvennu | Úrslit leikja

Lebron James skoraði 29 stig, gaf tólf stoðsendingar og tók tólf fráköst þegar lið hans Cleveland Cavaliers fór í heimsókn til Detroit Pistons. Frábær frammistaða Lebron varð til þess að Cleveland fór með sigur af hólmi, 101-113. Maurice Williams gerði 20 stig fyrir sigurliðið en atkvæðamestur Detroit var Richard Hamilton með 24 stig. Cleveland er sem fyrr efst í austur deildinni en hér má sjá önnur úrslit næturinnar:

Mynd: Nordic Photos

Indiana Pacers 99-94 Charlotte Bobcats

Miami Heat 76-88 San Antonio Spurs
Dwayne Wade skoraði 28 stig fyrir Miami. 

New Jersey Nets 84-108 Atlanta Hawks
New Jersey hafa þar með aðein sigrað sjö af 66 leikjum sínum. Þeir þurfa að vinna þrjá af síðustu sextán til að forðast það að jafna met Philadelphia 76ers frá 1973 og vera með versta sigurhlutfall í NBA sögunni. 

Memphis Grizzlies 104-97 Chicago Bulls

Denver Nuggets 97-87 Washington Wizards
Carmelo Anthony gerði 29 stig fyrir Denver og tók 12 fráköst. 

Leikjum Phoenix Suns-Minnesota Timberwolves og Sacramento Kings-Los Angeles Lakers var ekki lokið þegar þetta er skrifað.

Úrslit seinni leikja aðfaranótt þriðjudags:

Golden State Warriors 121-124 Los Angeles Lakers
Kobe Bryant gerði 29 stig fyrir Lakers. 

Los Angeles Clippers 100-108 New Orleans Hornets
Nýliðinn Darren Collison hjá New Orleans sem spilar leikstjórnanda stöðuna í fjarveru Chris Paul, sem er meiddur, gerði átján stig og gaf fjórtán stoðsendingar. 

  • Facebook
  • Twitter
  • StumbleUpon
  • Digg
  • del.icio.us
  • email