Föstudagur, 19. mars 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

IE deild karla: Dabney stigahæstur | Önnur tölfræði

Mynd: Karfan.is

Deildarkeppninni í Iceland Expressdeildinni í körfubolta lauk í vikunni þar sem KR urðu deildarmeistarar. Tímabilið er búið að vera stórskemmtilegt og er tilvalið að nota tækifærið og fara yfir tölfræði leikmanna. Hér má sjá stigahæstu og frákastahæstu leikmenn og að auki þá sem voru með flestar stoðsendingar; auk varðra skota og stolinna bolta. Andrey Dabney leikmaður Hamar er stigahæstur með rúm 25 stig að meðaltali í leik og félagi hans hjá Hamar Marvin Valdimarsson er næstur með tæp 25 stig að meðaltali. Hlynur Bæringsson hefur tekið flest fráköst eða rúm fimmtán að meðaltali í leik. Hinn nítján ára Ægir Þór Steinarsson leikmaður Fjölnis gefur flestar stoðsendingar eða tæpar átta að meðaltali í leik. Christopher Smith leikmaður Fjölni varði lang flest skot og Semaj Inge hjá KR stal flestum boltum að meðaltali.

Stig

Nr. Leikmaður Lið Leikir Stig Meðaltal
1. Andre Dabney Hamar 22 560 25.45
2. Marvin Valdimarsson Hamar 22 540 24.55
3. Justin Shouse Stjarnan 22 533 24.23
4. Christopher Smith Fjölnir 22 514 23.36
5. Sean Burton Snæfell 17 377 22.18
6. Cristopher Caird FSu 16 353 22.06
7. Draelon Burns Keflavík 11 233 21.18
8. Darrell Flake Grindavík 16 335 20.94
9. Páll Axel Vilbergsson Grindavík 21 435 20.71
10. Jovan Zdravevski Stjarnan 22 453 20.59

 

Fráköst

Nr. Leikmaður Lið Leikir   Meðaltal
1. Hlynur Bæringsson Snæfell 20 303 15.15
2. Christopher Smith Fjölnir 22 265 12.05
3. Jeremy Caldwell Breiðablik 14 140 10.00
4. Friðrik E. Stefánsson Njarðvík 22 204 9.27
5. Amani Bin Daanish Grindavík 11 101 9.18
6. Fannar Freyr Helgason Stjarnan 20 174 8.70
7. Sigurður Gunnar Þorsteinsson Keflavík 22 191 8.68
8. Aleksas Zimnickas FSu 17 147 8.65
9. Cristopher Caird FSu 16 137 8.56
10. Nemanja Sovic ÍR 22 177 8.05

 

Stoðsendingar

Nr. Leikmaður Lið Leikir Sto Meðaltal
1. Ægir Þór Steinarsson Fjölnir 21 164 7.81
2. Sean Burton Snæfell 17 132 7.76
3. Arnar Freyr Jónsson Grindavík 20 140 7.00
4. Justin Shouse Stjarnan 22 126 5.73
5. Andre Dabney Hamar 22 121 5.50
6. Semaj Inge KR 16 83 5.19
7. Hörður Axel Vilhjálmsson Keflavík 21 105 5.00
8. Michael Giovacchini Tindastóll 14 65 4.64
9. Nick Bradford Njarðvík 11 50 4.55
10. Jonathan Schmidt Breiðablik 16 72 4.50

 

Varin skot

1. Christopher Smith Fjölnir 22 71 3.23
2. Friðrik E. Stefánsson Njarðvík 22 38 1.73
3. Ragnar Á. Nathanaelsson Hamar 22 37 1.68
4. Amani Bin Daanish Grindavík 11 16 1.45
5. Jeremy Caldwell Breiðablik 14 19 1.36

 

Stolnir boltar

1. Semaj Inge KR 16 54 3.38
2. Andre Dabney Hamar 22 62 2.82
3. Hörður Axel Vilhjálmsson Keflavík 21 54 2.57
4. Nick Bradford Njarðvík 11 25 2.27
5. Jón Nordal Hafsteinsson Keflavík 19 42 2.21

 

 Tölfræði fengin af kki.is