KR og Keflavík unnu sína leiki í kvöld í undanúrslitum Iceland-Express deildar kvenna. KR tryggði sér því sæti í úrslitaleiknum, en Keflavík leiðir gegn Hamri í sínu einvígi 2-1.
Hamar 101-103 Keflavík
Það var hart barist í Hveragerði þar sem Keflavík kom í heimsókn. Leikurinn var frábær skemmtun, en heimastúlkur leiddu eftir fyrsta leikhluta 23-22. Í leikhluta númer tvö tóku gestirnir hins vegar saman í andlitinu og virtist vera síga fram úr Hamri, en svo var ekki. Hamarsstúlkur náðu að jafna metin í 59-59. Spennan var svo rafmögnuð undir lokin, en framlengja þurfti leikinn eftir að Koren Schram tryggði heimastúlkum framlengingu með tveggja stiga körfu undir lokin. Í framlengingunni var það Kristi Smith sem tryggði Keflavík áfram með þrist, fjórum sekúndur fyrir leikslok. Staðan því í einvíginu 2-1 fyrir Keflavík.
Julia Demirer var stigahæst hjá Hamri með 39 stig og einnig tók hún 13 fráköst. Kristi Smith skoraði 26 stig fyrir Keflavík, en Birna Valgarðsdóttir var frákastahæst með tólf fráköst.
KR 63-61 Haukar
KR-stúlkur gátu tryggt sér sæti í úrslitaleiknum og það gerðu þær í kvöld með góðum sigri á Haukum. Haukastúlkur virtust hins vegar koma sterkari til leiks því staðan eftir fyrsta leikhluta var 11-8 fyrir gestunum. Þær héldu áfram og staðan í hálfleik var 28-21. Í síðari hálfleik var allt annað að sjá til KR-liðsins, en þegar þriðja leikhluta lauk var staðan 37-31 fyrir Haukum. Í fjórða leikhluta snerist dæmið við; KR stúlkur skoruðu hvert stigið á fætur öðru og undir lokin var það Jenny-Pfeiffer Finora sem var hetja KR-stúlkna.
Margrét Kara Sturludóttir átti góðan leik fyrir KR í kvöld, en hún skoraði fimmtán stig eða jafnmörg og Kiki Lund hjá Haukum.











Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook