Mánudagur, 23. ágúst 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Dimovska í kvennalið Hamars

Mynd: Hilmar Þór

Landsliðskonan frá Makedoníu, Slavia Dimovska sem varð Íslandsmeistari í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik með Haukum 2009 hefur snúið aftur til Íslands. Hún er á leiðinni til Hveragerðis að leika með Hamri sem enduðu í 2.sæti í fyrra á Íslandsmótinu eftir oddaleik við KR.

Dimovska er 25 ára gömul og leikur í stöðu leikstjórnenda. Hún kom haustið 2007 og spilaði með Fjölni, en fór síðan yfir til Hauka tímabilið eftir. Þar var hún kosin besti leikmaður úrslitakeppninnar.

Þetta er góður liðsstyrkur fyrir Hamar en félagið hefur misst Sigrúnu Ámundadóttur sem fór í atvinnumennsku til Frakklands og Hafrúnu Hálfdánardóttur sem er kominn yfir til KR.

Slavia Dimovska skoraði 17 stig og gaf 5 stoðsetningar að meðaltali í leik með Haukum tímabilið 2008-2009 þegar þær urðu Íslandsmeistarar.

Hjá Hamri hittir hún fyrir fyrrum félaga sína í Haukum, Ágúst Björgvinsson, þjálfara og Kristrúnu Sigurjónsdóttur.