Þriðjudagur, 24. ágúst 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Bandaríkjamenn klárir með hópinn fyrir HM

Mynd: Nordic Photos

Bandaríkjamenn hafa tilkynnt tólf manna hópinn sinn sem mun fara á HM í Tyrklandi, sem hefst á laugardaginn. Athygli vekur á að enginn leikmaður er úr hópnum sem vann gullið á Ólympíuleikunum í Peking 2008 verður með á HM. Mike Krzyzewski er þjálfari liðsins líkt og í Peking árið 2008 en hann þjálfar háskólaliðið Duke.

Bandaríska liðið er skipað eftirfarandi leikmönnum:

Kevin Durant (Oklahoma), Derrick Rose (Chicago), Rudy Gay (Memphis), Lamar Odom (LA Lakers), Chauncey Billups (Denver), Danny Granger (Indiana), Russel Westbrook (Oklahoma), Eric Gordon (LA Clippers), Stephen Curry (Golden State), Kevin Love (Minnesota), Tyson Chandler (Dallas) og Ande Iguodala.

Leikstjórnandinn Rajo Rondo, leikmaður Boston Celtic, sem hefur tekið þátt í síðustu tveim æfingaleikjum liðsins, dró sig úr hópnum í gær. Bandaríkin tóku æfingaleik við Evrópu- og heimsmeistara Spánverja á sunnudaginn og fór leikurinn 86-85 fyrir bandaríska landsliðið. Kevin Durant var stigahæstur með 25 stig í leiknum.