Köfuknattleiksliðið Tindastóll ætlar sér greinilega góða hluti á komandi tímabili en liðið hefur fengið til sín þrjá erlenda leikmenn. Það eru þeir Dragoljub Kitanovic, Dimitar Petrushev og Michael Fratangelo.
Kitanovic kemur frá Serbíu og er 205 cm hár miðvörður og er 25 ára gamall. Petrushev er unur bakvörður frá Makedóníu og var fyrir nokkrum árum talinn einn efnilegasti bakvörður í bransanum. Þá er Fratangelo bandarískur bakvörður en hann er með ítalskt vegabréf.
Þeir koma til með að leysa af hólmi þá Axel Kárason, Sigmar Loga Björnsson og Sigurð Snorra Gunnarsson sem allir eru farnir frá félaginu.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook