Föstudagur, 27. ágúst 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Íris Sverrisdóttir í Hauka

Mynd: Hilmar Þór

Haukar halda áfram að draga til sín leikmenn fyrir komandi tímabil, en bakvörðurinn Íris Sverrisdóttir hefur skrifað undir samning við félagið. Valið stóð á milli KR og Hauka hjá henni en hún flutti svo í Hafnafjörðinn sem gerði útslagið að velja á milli félagana.

Íris er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Hauka fyrir tímabilið en fyrir voru þær Þórunn Bjarnadóttir, Val og Snæfellingarnir Gunnhildur Gunnarsdóttir og Unnur Lára Ásgeirsdóttir búnar að bætast við leikmannahópinn. Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar.

Íris er uppalinn Grindvíkingur, þó að Íris sé aðeins tvítug hefur leikið í efstu deild í smá tíma. Hún gerði 8,8 stig að meðaltali í leik á síðasta leiktímabili, 4,3 fráköst og 3,5 stoðsendingar í leik.

Ljóst er að Haukar verði með sterkt lið á komandi tímabili en Haukar urðu Íslandsmeistarar í unglinga og stúlknaflokki á síðustu leiktíð og því nóg af efnilegum leikmönnum til í herbúðum félagsins.

Haukar munu líklega einnig vera með meistarflokkslið í 1.deildinni á næstu leiktíð svo það verði nóg að verkefnum framundan fyrir alla í Hafnafirðinum.

Henning Henningsson þjálfar meistaraflokk Hauka og er hann kominn með nokkuð sterkt lið á pappírnum.