Föstudagur, 27. ágúst 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Yao Ming snýr aftur

Mynd: NordicPhotos

Læknar Houson Rockets hafa gefið kínverska risanum, Yao Ming, leyfi á að spila aftur með félaginu í vetur. Yao Ming missti af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla.

Leikmaðurinn var látinn fara í gegnum heila æfingu fyrir framan blaðamenn til þess að sanna að leikmaðurinn væri heill heilsu. Hann meiddist aðeins á æfingunni og hrópaði af sársauka. Yao Ming stóð svo fljótlega upp aftur og kláraði æfinguna.

Yao Ming er 28 ára og er stærsti maður NBA deildarinnar en hann er 2.29 metrar að hæð.

Ming var valinn fyrstur í nýliðavalinu 2002 og hefur sjö sinnum verið valinn í stjörnulið NBA, eða alltaf síðan hann byrjaði í NBA.

Yao Ming spilaði síðast tímabilið 2008/2009 og var þá með 19.7 stig að meðaltali í leik og 9.9 fráköst að meðaltali í leik.

Ragnar Nathanaelsson leikmaður Hamars í körfuknattleik er stærsti maður Íslands en hann er 2,18 metrar að hæð, sem þýðir að Ming er 11 sentimetrum stærri.