Fyrstu leikjunum á Eden mótinu í Hveragerði er lokið. Fjögur lið taka þátt á æfingamótinu þ.e. Hamar, Haukar, FSU og Þór Þorlákshöfn.
Hér er yfirlit yfir nokkra leiki sem hafa klárast, en mótið klárast á sunnudaginn með tveimur leikjum.
Fjórir leikir fóru fram í gær og á miðvikudaginn.
Haukar sigruðu á miðvikudaginn Þór með minnsta mun 73-74 og var Örn Sigurðsson stigahæstur Hauka með 15 stig og hjá Þór var Emil Emilsson með 25 stig.
Hamar sigruðu FSu örugglega með 26 stiga mun, 81-55. FSu voru 15 stigum yfir á tímabili en töpuðu því svo niður. Hjá Hamar var Darri Hilmarsson með 15 stig og fyrir FSu var Sæmundur Valdimarsson með 17 stig.
Í gær fóru tveir leikir fram en Hamar sigruðu Þór Þorlákshöfn með 19 stiga mun.
FSU spilaði svo við Hauka í gærkvöldi. Leikurinn var frekar jafn en Haukar voru alltaf með yfirhöndina í leiknum, svo börðust FSU drengilega og unnu leikinn að lokum með 15 stigum. Falleg karfa var skoruð í lok leiksins þar sem Valur Orri Valsson sonur Vals Ingimundarsonar þjálfara FSU skoraði flautukörfu frá öðrum endanum á vellinum.
Síðustu tveir leikirnir fara fram á sunnudaginn í íþróttahúsinu í Hveragerði. FSU mætir Þór Þorl. kl. 18:30 og Hamar mætir Haukum kl. 20:15.



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook