Sunnudagur, 29. ágúst 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Bandaríkin lögðu Slóveníu

Mynd: Nordic Photos

Bandaríska landsliðið vann sinn annan leik í röð á heimsmeistaramótinu í körfubolta er liðið vann Slóveníu 99-77 í dag. Kevin Durant hefur leikið vel í fyrstu tveimur leikjunum en hann var stigahæstur Bandaríkjamanna með 22 stig.

Durant er að sanna sig sem einn sá besti í veröldinni en hann var stigahæstur í NBA deildinni á síðustu leiktíð og var valinn í lið ársins.

Rudy Gay var næst stigahæstur liðsins með sextán stig og Andre Iguadala og Russel Westbrook gerðu ellefu stig hvor.

Bandaríkin eru í B-riðli og eiga eftir að mæta Brasilíu, Íran og Túnis í riðlakeppninni.