Sunnudagur, 29. ágúst 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Bandaríkin með sigur í fyrsta leik

Mynd: Nordic Photos

Bandaríska landsliðið vann það króatíska 106-78 á heimsmeistaramótinu í körfubolta. Var þetta fyrsti leikur beggja liða á mótinu.

Eric Gordon var stigahæstur hjá Bandaríkjamönnum með sextán stig, Kevin Durant kom næstur með fjórtán stig og Chauncey Billups fyrirliði liðsins var með tólf stig. Bojan Bogdanovic var stigahæstur Króatanna með sautján stig.

Næsti leikur bandaríska landsliðsins er gegn Slóveníu á sunnudag.